Hjartarannsókn er að stórum hluta í eigu Hjartaverndar og var stofnað árið 2005. Fyrirtækið starfar náið með Hjartavernd og er staðsett í húsnæði Hjartaverndar í Kópavogi.
Áhættureiknir Hjartaverndar metur áhættu einstaklings á að fá hjartasjúkdóm á næstu 10 árum og byggir á þeirri þekkingu sem Hjartavernd hefur aflað með öflugu vísindastarfi síðastliðin 50 ár.
Til að fá tíma í Áhættumat er hægt að hringja í síma 5351800 eða gera rafræna beiðni.
Hægt er að panta minningarkort Hjartaverndar bæði gegnum tölvu og símleiðis. Sjá nánar hér.
Starfsmenn Hjartarannsóknar eru læknar og hjúkrunarfræðingar með reynslu í greiningu og meðferð hjarta- og æðasjúkdóma.
Tilgangurinn með stofnun Hjartarannsóknar ehf. var fyrst og fremst að efla enn frekar forvarnir á sviði hjarta- og æðasjúkdóma. Þannig er áhættumat Hjartarannsóknar byggt á þeirri þekkingu sem Hjartavernd hefur aflað með öflugu vísindastarfi og hefur að leiðarljósi nýjustu greiningartækni og alþjóðlega viðurkennda staðla.