Hjartarannsókn

Hjartarannsókn ehf var stofnað í janúar 2005 til að annast áhættumat Hjartaverndar.

Starfsmenn Hjartarannsóknar eru læknar og hjúkrunarfræðingar með reynslu í greiningu og meðferð hjarta- og æðasjúkdóma.

Tilgangurinn með stofnun Hjartarannsóknar ehf. var fyrst og fremst að efla enn frekar forvarnir á sviði hjarta- og æðasjúkdóma.

Við erum til húsa að Holtasmára 1, 2. hæð, 201 Kópavogur, Ísland

Skiptiborð: 535-1800 / Fax: 535-1801

 

Geislafræðingur ræðir við kúnna
Í fimm áratugi

Áhættumat

Hjartavernd hefur staðið fyrir opnu áhættumati fyrir almenning í nærri fjóra áratugi. Í áhættumatinu geta einstaklingar fengið mælingar á helstu áhættuþáttum hjarta- og æðasjúkdóma og heildstætt mat á því hverjar líkurnar séu á því að fá hjartasjúkdóm síðar á lífsleiðinni.

Byggt á áratuga þekkingu

Áhættumat

Matið hefur tekið breytingum í áranna rás eftir því sem þekkingu á hjartasjúkdómum hefur fleygt fram. Áhættumatið grundvallast á þessum hefðbundnu áhættuþáttum: reykingum, háum blóðþrýstingi, háum blóðfitum, ættarsögu, offitu, sykursýki og hreyfingarleysi.

Hjartalæknir les af tölvuskjá
Einstaklingsbundin áhætta

Áhættureiknivél

Rannsóknir Hjartaverndar hafa sérstaklega skoðað þýðingu þessarra áhættuþátta í Íslendingum og innbyrðis vægi þeirra. Rannsóknir þessar hafa verið notaðar til að útbúa reiknilíkan eða áhættureiknivél sem metur áhættu hvers og eins.

Nafn Staða Netfang Símanúmer
Anita Pálsdóttir Móttökuritari anita@hjarta.is 535-1800
Bolli Þórsson Yfirlæknir Hjartarannsóknar og sérfr í innkirtla-og efnaskiptasj afgreidsla@hjarta.is 535-1800
Hjálmfríður Nikulásdóttir Hjúkrunarfræðingur frida@hjarta.is 535-1852
Jóhanna Eyrún Sverrisdóttir Yfirhjúkrunarfræðingur og sviðsstjóri johanna@hjarta.is 535-1841
Lilja Jóhannesdóttir Ritari lilja@hjarta.is 535-1800
Steinar Guðmundsson Hjartalæknir 535-1800
Staðsetning Hjartaverndar

Staðsetning

Holtasmári 1 2. hæð, 201 Kópavogur, Ísland

Skoða á korti

Hafa samband við hjartavernd

Hafa samband

Opnunartímar hjartaverndar

Opnunartímar

  • Mán - Fös: 08:00 - 16:00
  • Helgar: Lokað
Holtasmári 1, 2. hæð, 201 Kópavogur, Ísland
Sími: 535-1800
Opnunartími í dag: Lokað
Fara efst á síðu